DREKKTU Í ÞIG MENNINGU
Menningar- og markaðsferð til Vilinius frá 3-6 mars 2018
Fyrstu helgina í mars á hverju ári fyllast stræti, torg og götur í Vilinius af menningu þar sem Kaziukas markaðurinn er haldinn þá. Markaðurinn hefur verið haldinn í aldanna rás þar sem þú getur týnt þér á meðal fólks og verslað gjafavörur eins og enginn er morgundagurinn.
Við erum með ferð til Vilinius á þessum sama tíma og bætum um betur
Laugardagur
Reykjavik – Vilnius
Beint flug frá Keflavík með Wizz air kl.19:10-00:5
Rútan keyrir okkur á hótel (ca.7 km). Vilnius er einstaklega falleg borg með merka sögu, lágreist múrsteinshús og glæstar barokk- byggingar. Ekki má gleyma Gediminas kastala. Eftir komuna á hótel mun fararstjórinn bjóða upp á stutta bæjarferð með leiðsögn fyrir þá sem vilja. Síðan verður frjáls tími til að ganga um götur bæjarins, á Kaziukas markað, fá litháískan bjór og jafnvel smakka litháiska rétti.
Gist verður á snyrtilegu 4 **** hóteli.
Sunnudagur
Skoðunaferð til Trakai
Komið til Trakai fyrrum höfuðborgar stórhertogadæmisins Litháen með frægum kastala úti á tanga á Galvé vatni. Trakai er örugglega mest heimsótta borgin í landinu og áhugaverðasti ferðamannastaðurinn. Trakai er aðeins í 20 km. fjarlægð vestur af Vilnius. Kastalinn var byggður úti á vatninu með síki allt um kring til að tryggja öryggi íbúa. Kastalinn hefur langa sögu en var upphaflega byggður árið 1410 sem varnarvirki. Honum var breytt í bústað Grand Dukes af Litháen og síðar varð hann fangelsi. Eftir þetta féll Trakai kastali í varnrækslu sem varði til 1962 þegar ríkisstjórn Litháen ákvað að endurnýja hann. Eftir þessa heimsókn komum aftur til Vilnius og væri gaman að ljúka deginu saman með kvöldverði og skemmtun.
Mánudagur
Frjáls dagur í Vilnius
Í dag er frjáls dagur í Vilnius. Verður frjáls tími til að ganga um bæinn, fyrir konur er mælt með SPA slökun eða versla. Allir litlir notalegir verslanir eru staðsett á aðalgötum Gedimino Prospektas og Pilies gatve. Þetta eru göngugötur í miðbænum. Stórar verslanir eins og EUROPA http://www.pceuropa.lt/(opið til kl.21.00), OZAS http://ozas.lt/, H&M http://www.hm.com/lt/ og PANORAMA http://www.panorama.lt/ eru opnar til kl 22.00 öll kvöld og eru ca. 1,5-2 km. frá miðborginni. Gott úrval veitingastaða og kaffihúsa er í bænum og ekki má gleyma Kaziukasmarkaðnum sem er á aðaltorginu við Vilniaus Katedra með úrval af gjafavöru og góðgæti.
Þríðjudagur
Heimferð: Vilnius – Reykjavik
Eftir morgunverð er farið með rútu út á flugvöll og ´siðan er beint flug frá Vilnius kl. 15:55.
Lent í Keflavík kl. 18:25.
Ferðin
Verð: 87.650,- ISK á mann í tvíbýli.
Aukagjald fyrir einbýli er: 25.000,-ISK
Flug með WIZZair hægt að bóka á netinu . Verð ca. 40.000,- ISK. https://wizzair.com/#/ Innifalið:
- Ferðir milli flugvallar og hótels
- Gisting í 2ja manna herbergum með baði, á 4 **** hóteli
- Morgunverður
- Skoðunarferð til Trakai
- Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið:
- Flug með WIZZair til Vilnius og flugvallarskattar
- Forfalla- og ferðatryggingar
- Aðgangseyrir inn á söfn, í hallir og kirkjur. Hádegis- og kvöldverðir. Þjórfé