About Tour
Price/Information

Við hjá Kría Travel bjóðum upp á frábærar ferðir fyrir vinnustaði, vinahópa, samstarfsfélaga og fjölskyldur svo eitthvað sé nefnt. Við skipuleggjum þá fyrir hópinn þinn ferðina og náttúrulega gefum ykkur  líka lausan tauminn. Við getum sérsniðið ferðina eftir því hvernig hópurinn þinn er en hér að neðan er dæmi um 1-2 daga leiðsögn.

Wizzair flýgur á laugardögum og þriðjudögum til Vilnius og því leggjum við hér upp úr 4 daga ferð þar sem 1-2 dagar eru með leiðsögn .

Skemmtiferð í Vilnius

Í þessari 1-2 daga leiðsögn um Vilnius sýnum við ykkur allt það helsta sem borgin hefur upp á að bjóða og segjum ykkur staðreyndir um staðina þannig að þið kynnist almennilega borginni. Hægt er að skipta leiðsögninni á milli tveggja daga eða taka hana á einum degi.

Vilnius

Þið munið kynnast Vilnius, menningu hennar og sögu. Vilnius er staðsett í einstaklega fallegu umhverfi og er dásamlegt að rölta þar um. Samblandaður arkitektúr frá ýmsum tímum; gottneskum, miðalda, klassískum og barokka. Við munum heimsækja sögulega hluta borgarinnar sem og nýrri hluta svo þið sjáið allt það sem borgin hefur upp á að bjóða.

Hægt er að heimsækja m.a.: 

Eins og fyrr greinir er best að hafa samband og við sérsníðum ferðina að ykkar þörfum