About Tour
Price/Information

Langar vinnustaðnum, vinunum, saumaklúbbnum, starfsmannafélaginu eða fjölskyldunni að skella sér saman í ferð? Þá getum við hjá Kría Travel svo sannarlega lagt ykkur lið.

Við skipuleggjum hópaferðir til Litháen og hægt er að bjóða upp á ýmsar ferðir. Hér að neðan höfum við t.a.m. dæmi um vikuferð þar sem við bjóðum upp á 2-4 daga leiðsögn fyrir hópinn en við getum einnig boðið upp á styttri ferðir eins og t.a.m. 4 daga ferð.

Wizzair flýgur á laugardögum og þriðjudögum til Vilnius og því leggjum við hér upp úr fjögurra daga eða vikuferð þar sem 2-4 dagar eru með leiðsögn allt eftir því hversu þétt hópurinn vill skoða sig um.

Skemmtiferð í Kaunas

Í þessari 2-4 daga leiðsögn um Kaunas í Litháen fær hópurinn þinn að kynnast sögufræga bænum Kaunas.

Kaunas

Þið munið kynnast Kaunas borginni en hún hefur sett sitt mark á sögu og menningu Litháen. Fjöldinn allur af söfnum, kirkjum og klaustrum eru í borginni sem munu færa ykkur nær sögunni og svo er hún einstaklega sjarmerandi.

Hægt er að heimsækja m.a.: 

Eins og fyrr greinir er best að hafa samband og við sérsníðum ferðina að ykkar þörfum og hjálpum ykkur við að gera ferðina sem allra eftirminnilegasta og getum einnig aðstoðað við að finna hótel o.þ.h.